| Fyrri mynd | Næsta mynd |
bb.is | 25.06.2007 | 13:01Hálfheiðið og hálfkristið brúðkaup í glampandi sól
Það var ekki hægt að kvarta yfir veðrinu þegar Anna Sigríður Ólafsdóttir og Úlfur Þór Úlfarsson gengu að eiga hvort annað í Skatnavör neðan Arnarness í Skutulsfirði á laugardag. Sólin skein daglangt og innlögnin var í lágmarki og var mál manna að Skutulsfjörður og Arnardalurinn hefðu sjaldan verið fegurri. Brúðkaupið var óvenjulegt fyrir það að það var hálfheiðið og hálfkristið, en um vígsluna sáu þau séra Magnús Erlingsson, sóknarprestur á Ísafirði, Jónína K. Berg, fyrrverandi allsherjargoði og Eyvindur Eiríksson Vestfjarðagoði. Þrátt fyrir að mest hafi borið á brúðinni, eins og venja er við athafnir sem þessar, er ekki laust við að brúðguminn hafi náð að fanga augnaráð gesta, en hann klæddist skotapilsi og hnésokkum við efrihluta íslenska búningsins. Þess má geta að á laugardag var syni þeirra Önnu og Úlfs einnig gefið nafn og heitir hann Fróði Örn Arndal Úlfsson.tinna@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (1 Komment )
Hjartanlega til hamingju með þennan stórkostlega dag ykkar og að sjálfsögðu nafnið á prinsinum ykkar, Fróði Örn Arndal bara flott á flottan strák.
Sendi ykkur orkukveðjur frá kyingimögnuðu náttúru
Norðurþings.
Milla.
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.