bb.is | 07.06.2007 | 06:35Góður gangur hjá Gistihúsinu við Fjörðinn
Góð aðsókn er að Gistihúsinu við Fjörðinn á Þingeyri og eru bókanir þegar farnar að berast fyrir næsta ár. „Við hjá Gistihúsinu við Fjörðinn og F & S hópferðabílum opnuðum nýja heimasíðu 1. júní sl. sem Snerpa á Ísafirði sá um að hanna og setja upp. Við vonumst til þess að nýja síðan þjóni viðskiptavinum okkar og öðrum sem áhuga hafa á Vestfjörðum,“ segir Sigríður Helgadóttir annar eigenda gistihússins og F & S hópferðabíla.
Gistihúsið við Fjörðinn opnaði sumarið 2000. Þar eru herbergi og íbúðir fyrir ferðafólk, en einnig eru þar aðalstöðvar Skjólskóga á Vestfjörðum. F & S hópferðabílar ehf. eiga og reka níu hópferðabíla, en nýlega keypti fyrirtækið bílaflota FMG á Ísafirði og tók við aksturssamningum þeirra. Einnig á fyrirtækið hlut í Hópferðamiðstöð Vestfjarða. Fyrirtækið sér m.a. um allar almenningssamgöngur Ísafjarðarbæjar og er með skólaakstur og póstflutninga. Hjá fyrirtækinu eru nú sjö fastir starfsmenn.
tinna@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.