Tungudalsvöllur: Íslandsmót golfklúbba í 3. deild

Þann 12. ágúst hefst Íslandsmót golfklúbba í 3. deild á Tungudalsvelli á Ísafirði.  Fyrstu leikirnir eru kl 08.00.  Í þessari keppni eru lið heimamanna Golfklúbbs Ísafjarðar og svo líka lið Golfklúbbs Bolungarvíkur.    Auð auki eru 6 önnur lið, frá Hveragerði, Skagafirði, Húsavík, Borgarnes, Grindavík og Eskifirði.

Lið Ísafjarðar er skipað eftirfarandi leikmönnum.

Anton Helgi Guðjónsson

Ásgeir Óli Kristjánsson

Baldur Ingi Jónasson

Hjálmar Helgi Jakobsson

Jón Gunnar Shiransson

Julo Thor Rafnsson

Góð blanda af eldri og yngri leikmönnum sem eru í fyrsta flokki GÍ og hafa auk þess keppt í mótum Golfklúbbs Ísafjarðar og í mótum Golfsambands Íslands.   Reynt verður að flytja fréttir af úrslitum sem og setja inn hlekki á úrslit og rástíma þegar það liggur fyrir.

Það mun opna snemma í golfskálanum þar sem verður hægt að fá morgunverð frá 07.00 til 08.00  og hádegisverð frá 12.00 til 13.00 til viðbótar við  þær veitingar sem hafa verið í boði í sumar í skálanum.

Af pallinum í golfskálanum má sjá yfir völlinn og því kjörið fyrir áhugasama að mæta og fylgjast með.

Vegna mótsins verður völlurinn lokaður frá kl 21:30 og allir kylfingar þurfa að yfirgefa völlinn fyrir þann tíma.

DEILA