Skrifstofur ráðherra um land allt

Málefni háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins eiga við um land allt og mun ráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, staðsetja skrifstofu sína víðs vegar um landið á kjörtímabilinu.

Á hverri starfsstöð verður ráðherra með opna viðtalstíma þar sem öll áhugasöm eru velkomin í stutt, milliliðalaust spjall um málefni á borði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Þá verða fyrirtækjaheimsóknir einnig hluti af dagskrá ráðherra.

Hér má sjá dagsetningar og staðsetningu á skrifstofum ráðherra um land allt í haust. Athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar á dagskrá ráðherra.

  • 18. ágúst – Snæfellsbær
  • 29. ágúst – Mosfellsbær
  • 5. september – Árborg
  • 12. september – Hafnarfjörður
  • 22. september – Múlaþing
  • 28. september – Akureyri
  • 10. október – Ísafjörður
  • 13. október – Reykjanesbær
  • 20. október – Vestmannaeyjar
  • 27. október – Akranes

Frá því að nýtt háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti tók til starfa í febrúar hefur ráðuneytið verið opið fyrir störfum óháð staðsetningu. Í því felst að starfsemi ráðuneytisins er ekki bundin við einn ákveðin stað þrátt fyrir að aðalstarfsstöð þess sé staðsett í Reykjavík. Þannig geta starfsmenn ráðuneytisins unnið að heiman eða frá þeim stað á landinu sem best hentar hverju sinni. Ráðherra er þar engin undantekning og með því að staðsetja skrifstofu ráðherra um víðs vegar um landið gefst mikilvægt tækifæri til aukinnar tengslamyndunar og samstarfs við háskóla, stofnanir, fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklinga um land allt.

Staðsetningar skrifstofu ráðherra árið 2023 verða auglýstar síðar.

DEILA