Kjósum fugl ársins

Fuglavernd hefur hrundið af stað leitinni að Fugli ársins, annað árið í röð.

Kynntir eru til leiks tuttugu fuglar á nýuppfærðri heimasíðu keppninnar.

Í fyrra bar heiðlóan, vorboðinn ljúfi, sigur ur bítum.

Markmiðið með kosningu á Fugli ársins á ný er að draga fram nokkrar fuglategundir sem finnast hér á landi og fjalla um mikilvæg búsvæði og fæðuval þeirra og einnig að líta á áætlaðar stofnstærðir þeirra og stöðu stofnanna í Evrópu og hér á Íslandi. Það getur verið áhugavert að sjá muninn á þessum þáttum á milli tegundanna sem kynntar eru. 

Með þessu vill Fuglavernd leggja sitt af mörkum um að efla fræðslu, samtal og umfjöllun um stöðu fuglastofna hér á landi og um mikilvægi fugla í lífríkinu. Íslandi hefur ákveðna sérstöðu þegar kemur að fuglum, hér eru tiltölulega fáar tegundir en hjá sumum þeirra eru hlutfallslega stórir stofnar og Ísland því mikilvægt land fyrir fugla ekki síður en okkur mannfólkið.

Forvalið fer fram rafrænt dagana 10.-15. ágúst á vefsíðu keppninnar.
Úrslitakosningin um Fugl ársins 2022 fer svo fram dagana 5.- 12.september og verður sigurvegari ársins kynntur þann 16. september á Degi íslenskrar náttúru.

Kynntu þér keppendur og taktu þátt með því að velja þann fugl sem þú vilt sjá keppa um titilinn Fugl ársins 2022

DEILA