ÍSÍ og UMFÍ verða með þjónustumiðstöð á sama stað

Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ og Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, skrifuðu undir samning

Tímamót urðu nýlega þegar þeir Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ og Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, skrifuðu undir samning um leigu á húsnæði fyrir starfsemi UMFÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Stefnt er að því að Þjónustumiðstö UMFÍ flytji á 3. hæð Íþróttamiðstöðvarinnar í haust.

Fundarsalir ÍSÍ hafa í gegnum árin verið á þriðju hæðinni í Íþróttamiðstöðinni. Unnið er að endurskipulagningu allrar þriðju hæðarinnar svo að þar verði til skrifstofurými fyrir starfsemi UMFÍ ásamt fundarsölum ÍSÍ. Framkvæmdir við húsnæðið hófust í sumar og standa yfir inn í haustið. Gert er ráð fyrir því að UMFÍ flytji inn í Íþróttamiðstöðina síðar á árinu.


Það eru sannarlega ánægjuleg tímamót að samtökin fari undir eitt þak og mun án nokkurs efa leiða til hagræðis og mögulega betri nýtingu á fjármunum fyrir íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna, einfalda boðleiðir og auka verulega möguleikana á enn frekara samstarfi innan íþróttahreyfingarinnar, samfélaginu til góða segir í frétt á vef samtakanna.

Formenn og framkvæmdastjórar samtakanna
DEILA