Ísafjarðarbær: bæjarráð mótmælir gjaldtöku í jarðgöngum

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar mótmælir gjaldtöku í jarðgöngum sem boðaðar eru segir í samþykkt bæjarráðs frá því í gær. Áhrifin af gjaldtökunni verða neikvæð á atvinnulíf, vinnusókn og samstarf íþróttafélaga.

„Ísafjarðarbær varð til í samhengi við gröft Vestfjarðaganga. Göngin eru í miðju sveitarfélagsins og ekki hægt að komast milli fjarða nema í gegnum þau. Enn önnur göng, til Bolungarvíkur, eru innan atvinnusóknarsvæðisins. Mikið og vaxandi samstarf er milli sveitarfélaganna og íbúanna sem þau byggja. Þriðju göngin, Dýrafjarðargöng, liggja svo innan sveitarfélagsins og gera Vestfirði loksins að þeirri samstæðu heild sem svo lengi hefur verið stefnt að. Atvinnulíf, vinnusókn, samstarf íþróttafélaga og margir aðrir þættir daglegs lífs verða fyrir neikvæðum áhrifum af fyrirhugaðri gjaldtöku. Engin haldbær rök eru lögð fyrir því að jarðgöng eigi sérstaklega að vera gjaldskyld umfram önnur samgöngumannvirki.“

Bæjarráðið gerir ekki athugasemd við stofnun opinbers hlutafélags um uppbyggingu og rekstur samgönguinnviða, né þá forsendu að gjaldtaka verði að taka breytingum með orkuskiptum í samgöngum.

Að öðru leyti er vísað í aðrar umsagnir sem borist hafa í samráðsgáttina, m.a. um byggðasjónarmið, jafnræði, þörfina fyrir öfluga fjárfestingu í samgönguinnviðum og ófullburða mat á áhrifum lagasetningarinnar.

DEILA