Friðrún Gestsdóttir er íbúi ársins 2022 í Reykhólahreppi

Í Reykhólahreppi var Friðrún Gestsdóttir útnefnd íbúi ársins að þessu sinni.

Undanfarin ár hefur hún hlotið tilnefningar og núna var hún hlutskörpust.

Er óhætt að segja að hún sé afskaplega vel að þessu komin, eins og raunar allt það fólk sem hefur verið heiðrað með þessum hætti.

Þegar niðurstaðan var tilkynnt sagði Jóhanna Ösp Einarsdóttir varaoddviti sveitarstjórnar meðal annars:

„Friðrún hefur unnið af alúð fyrir sveitarfélagið í mörg ár. Hún hefur sett mark sitt á allt skólastarf með sínu einstaka jákvæða viðmóti og dillandi hlátri. Hún hefur verið til staðar fyrir börn skólans sem hafa fundið stuðning og hlýju frá Friðrúnu.
Friðrún hefur barist með skjólstæðingum sínum fyrir bættri aðstöðu og gefið sig 150% í starf sitt með börnum með fötlun.
Friðrún er jafnframt einstaklega jákvæð og bjartsýn og hefur líka gefið okkur fullorðna fólkinu gleði í hjarta með því að senda okkur hlýtt bros og falleg orð. „

DEILA