Atvinnuleysi var 3,2% í júlí

Skráð atvinnuleysi var 3,2% í júlí og minnkaði úr 3,3% í júní. Að meðaltali fækkaði atvinnulausum um 396 frá
júnímánuði.
Að meðaltali voru 6.279 atvinnulausir í júlí, 3.402 karlar og 2.877 konur.
Af einstökum landshlutum dró mest hlutfallslega úr atvinnuleysi á Norðurlandi vestra og á Suðurlandi.
Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum í júlí eða 5,5% og minnkaði úr 5,8% í júní. Næst mest var atvinnuleysið 3,5% á höfuðborgarsvæðinu og minnkaði úr 3,7% í júní.
Minnst var atvinnuleysi í júlí á Norðurlandi vestra 0,7%, og 1,4% á Vesturlandi, Vestfjörðum svo og á Austurlandi.
Alls höfðu 2.387 verið án atvinnu í meira en 12 mánuði í lok júlí og fækkaði um átta frá júní.
Alls voru 2.842 erlendir atvinnuleitendur án atvinnu í lok júlí og fækkaði um 221 frá júní eða um 7%. Hlutfall erlendra ríkisborgara á atvinnuleysisskrá lækkaði úr 44% í júní í 43% í júlí.

DEILA