Náttúrubarnahátíð á Ströndum um næstu helgi

Náttúrubarnahátíð á Ströndum verður haldin á Sauðfjársetrinu í Sævangi helgina 8.-10. júlí.

Þetta er í sjötta skipti sem hátíðin er haldin, en hún er fjölskylduhátíð þar sem gestir; börn og fullorðnir, fá tækifæri til að finna eða rækta sitt innra náttúrubarn á fjölbreyttum viðburðum sem einkennast af útivist, fróðleik og skemmtun.

Það er Náttúrubarnaskólinn sem stendur fyrir hátíðinni og hefur Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur séð um hann undanfarin ár.

„Hátíðin hefst á föstudegi og fer að mestu fram utandyra, svo við hefjum hana alltaf á því að framkvæma veðurgaldur, til að tryggja gott veður um helgina, ekki veitir nú af eins og veðrið hefur verið. Skipulagningin gengur mjög vel og þetta er allt að smella saman. Við erum með glæsilega dagskrá, fjölbreytt og skemmtileg atriði, tónlist, spennandi smiðjur, gönguferðir og útivist. Ég hlakka mjög til, eins og alltaf,“ segir Dagrún

Á hátíðinni um helgina verða meðal annars á dagskrá spennandi náttúrusmiðjur með Arfistanum, Þykjó og Eldraunum, Sirkus Ananas, Solla stirða og Íþróttaálfurinn koma í heimsókn og Lalli töframaður verður með magnaða töfrasýningu.

Svavar Knútur verður með fjölskyldutónleika og svo verður hægt að fara á hestbak, taka þátt í kiðlingajóga, gönguferðum, ísbjarnahræðugerð, fjölskylduplokki, spurningaleik, hlusta á drauga- og tröllasögur, skjóta af boga og margt fleira.

Annars er dagskráin þessi:

Föstudagur 8. júlí
17:00 Fjölskyldu gönguferð í fjörunni
18:30 Setning hátíðarinnar og veðurgaldur
18:30 Hægt að kaupa súpu og grillaðar pylsur (grænmetis og ekki) í Sævangi
19:00 Frábær töfrasýning með Lalla töframanni
20:00 Spennandi NáttúrubarnakvissLaugardagur

9. júlí
12:30 Sirkús Ananas
13:00 Náttúrufjör: Bogfimi, hestar, eldsmiðja, kajakar, opið hús í tilraunastofunni, náttúrubingó, grillaðar pylsur og fleira
14:30 Yrðlingasmiðja með Þykjó
16:00 Sagnatjaldið í Sævangi
16:30 Fuglafjör: Trítlað um teistuvarpið
17:30 Ísbjarnahræðugerð í Orrustutanga
18:00 Hægt að kaupa grillaðar pylsur og súpu
20:00 Fjölskyldu tónleikar með Svavari Knút
21:30 Drauga- og tröllasögur í SagnahúsinuSunnudagur

10. júlí
11:30 Kiðlingajóga
12:30 Solla stirða og íþróttaálfurinn úr Latabæ koma í heimsókn
13:30 Skemmtileg náttúrusmiðja með Arfistanum
15:30 Fjölskylduplokk

Það er frítt á öll atriði hátíðarinnar en hún er styrkt af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða. Það er hægt að kaupa súpu, grillaðar pylsur, samlokur og ís í Sævangi alla helgina. Gestum hátíðarinnar býðst að tjalda frítt á Kirkjubóli sem er beint á móti Sævangi en þar er þó ekki eiginlegt tjaldsvæði (ekkert rafmagn). Á Hólmavík er svo gott tjaldsvæði og ýmsir gististaðir í grenndinni.

DEILA