Vestri dregur lið sitt úr 1. deild kvenna

Í frétt á vef Körfuknattleikssambandsins er greint frá því að lið Vestra hefur dregið sig úr keppni 1. deildar kvenna fyrir keppnistímabilið 2022-2023.

Við þetta fækka liðum í 1. deild kvenna í níu og hvert lið leikur 24 leiki í stað 27 eins og upphaflega var áætlað.

Leikjaplan deildarinnar hefur verið uppfært á kki.is með hliðsjón af þessu.

DEILA