Verulega dregur úr atvinnuleysi

Skráð atvinnuleysi mældist 3,9% á landinu í maí og drógst saman um 0,6 prósentustig milli mánaða.

Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar.

Stofnunin spáir því að atvinnuleysi dragist áfram saman í júní og verði á bilinu 3,5-3,8% í lok næsta mánaðar.

Atvinnuleysi dróst saman í öllum landshlutum en þó mest á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum.

Mest er atvinnuleysi á Suðurnesjum 6,6% en minnst á Norðurlandi vestra, 1,2% og á Vestfjörðum 1,9%

Atvinnuleysi náði hámarki í janúar í fyrra þegar það mældist 11,6% en því til viðbótar voru 1,2% í skertu starfshlutfalli á hlutabótaleið stjórnvalda, tímabundnu úrræði sem komið var á í kórónuveirufaraldrinum. Síðan þá hefur nær samfellt dregið úr atvinnuleysi.

DEILA