Íbúafundur í verkefninu Öll vötn til Dýrafjarðar

Íbúafundur var haldinn miðvikudaginn 15. júní sl. í byggðaþróunarverkefninu Öll vötn til Dýrafjarðar í Félagsheimilinu á Þingeyri. Fámennt en góðmennt var á fundinum.

Arna Lára Jónsdóttir formaður stjórnar setti fundinn og bauð fundargesti velkomna. Því næst flutti Sigríður Elín Þórðardóttir, forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar, ávarp. Kristján Þ. Halldórsson og Helga Harðardóttir fulltrúar Brothættra byggða hjá Byggðastofnun kynntu niðurstöður rýnihópaviðtala sem tekin voru við fimm hópa íbúa á Þingeyri og við Dýrafjörð í lok síðasta árs.

Agnes Arnardóttir, verkefnisstjóri ÖvD, fór yfir stöðu styrktra verkefna sem hlutu styrk á árinu 2022 og yfir stöðu verkefnisins ÖvD með hliðsjón af starfsmarkmiðum. Tveir styrkhafar þessa árs kynntu verkefni sín fyrir fundargestum.

Kaffiveitingar voru í umsjón kvenfélagskvenna og runnu nýsteiktar vöfflur ljúflega niður með kaffinu. Eftir kaffihlé var fundargestum skipt í hópa þar sem við tóku umræður um ýmis málefni sem snerta framfaramál í byggðarlaginu.

Það er engan bilbug að finna á íbúum á Þingeyri og við Dýrafjörð á síðasta ári verkefnisins og auðsýnt að kraftur, dugur og bjartsýni ríkir meðal þeirra. Þann kraft þarf að virkja áfram byggðarlagingu til farsældar.

Hér má sjá myndir frá íbúafundinum.

Myndirnar tók Kristján Þ. Halldórsson.

DEILA