5 tonn af rusli flutt með varðskipinu Þór

Um liðna helgi tók áhöfnin varðskipinu Þór þátt árlega hreinsunarverkefni samtakanna Hreinni Hornstrandir.

Verkefnið hófst á föstudag þegar 28 vaskir sjálfboðaliðar fóru siglandi inn í Hrafnfjörð en þaðan lá leiðin yfir Skorarheiði og niður í Furufjörð.

Áhöfn varðskipsins hitti hópinn fyrir í Furufirði á laugardeginum og var þá hafist handa við að ferja ruslahrúgur, sem safnast höfðu, um borð í varðskipið. Samtökin Hreinni Hornstrandir buðu sjálfboðaliðum og áhöfn varðskipsins í grill á heimleiðinni.
Afraksturinn, 5,19 tonn af rusli var settur í land á Ísafirði, mest plast og netadræsur. 

IMG_3115

Ruslið var flutt um borð í varðskipið og þaðan í land. 

IMG_3086

Rúmlega fimm tonn af rusli safnaðist.

DEILA