Töfrandi Álfur á ferð um Vestfirði

Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ og Þráinn Farestveit varaformaður ásamt Willum Þór Þórssyni ráðherra heilbrigðismála, en Willum kom í heimsókn til SÁÁ til að kaupa fyrsta Álfinn.

Dugnaðarforkar víða á Vestfjörðum hafa tekið að sér að selja Töfra-Álf SÁÁ næstu daga. Sölufólk verður á ferð á fjölförnum stöðum á Vestfjörðum fram á næstu helgi, ekki síst verslunum og bensínstöðvum. Víðast halda einstaklingar í hverju sveitarfélagi utan um Álfasöluna með öflugu sölufólki, en þess má geta að á Þingeyri og Flateyri sér íþróttafélagið Höfrungur um að kynna Álfinn til leiks. 

Þetta er í 34. skipti sem SÁÁ stendur að Álfasölunni, sem er ein mikilvægasta fjáröflunarleið samtakanna.  

Að þessu sinni er Álfurinn í gervi töframanns, sem er afar viðeigandi í ljósi þess að Álfasala SÁÁ hefur stuðlað að töfrum í lífi þeirra þúsunda sem hafa komið í meðferð hjá samtökunum gegnum árin. Að ekki sé talað um töfrana fyrir aðstandendur, vini, vinnuveitendur og þjóðfélagið allt. 

Tekjurnar af Álfasölunni hafa einkum verið nýttar til að byggja upp rými og þjónustu fyrir ungt fólk og aðstandendur alkóhólista. 

Sú mikla uppbygging sem SÁÁ hefur staðið fyrir í tæp 45 ár byggir alfarið á fjárhagslegum stuðningi landsmanna, sem hafa ávallt tekið vel í fjáraflanir samtakanna, ekki síst Álfinn. 

Í heildina munu um 800 manns bjóða Töfra-Álfinn til sölu næstu daga á fjölförnum stöðum um land allt. 

DEILA