Nýr formaður hjá Héraðssambandi Vestfirðinga

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV) fór fram 11. maí sl. í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.

Ásgerður Þorleifsdóttir, sem verið hefur formaður HSV frá árinu 2018, gaf ekki áfram kost á sér í embættið og var Lára Ósk Pétursdóttir kjörin sem nýr formaður HSV.

Lára Ósk sat áður í stjórn HSV þannig að hún þekkir vel til starfsemi sambandsins. Formannsskiptin fóru fram í fjarveru bæði fráfarandi formanns og nýkjörins formanns en það kom ekki að sök.

Þingið var vel sótt og starfssamt en nokkrar tillögur lágu fyrir þinginu, þar á meðal ein tillaga um breytingu á lögum HSV.

DEILA