Menntaskólinn á Ísafirði útskrifar 50 nemendur

Menntaskólinn á Ísafirði

Laugardaginn 21. maí voru 50 nemendur brautskráðir frá skólanum við hátíðlega athöfn í Ísafjarðarkirkju. Útskriftarnemar, starsfólk skólans, afmælisárgangar og aðrir gestir voru viðstödd athöfnina, en Viðburðarstofa Vestfjarða sá um að streyma henni beint. 

Útskriftarfagnaður sem hefð er fyrir að halda að kvöldi brautskráningardags með útskriftarnemum, fjölskyldum þeirra og afmælisárgöngum var haldinn að kvöldi útskriftardags eftir þriggja ára hlé sem var vegna heimsfaraldurs Covid 19.

Nemendur voru brautskráðir af 10 námsbrautum. Tuttugu nemendur úr iðnmeistaranámi,  tveir nemendur af sjúkraliðabrú, tveir úr skipstjórnarnámi B, og einn úr stálsmíði. Þrír nemendur luku diplómu í förðun. Alls útskrifuðust 26 nemendur með stúdentspróf og skiptust þannig eftir brautum: Einn af félagsvísindabraut, einn af náttúruvísindabraut – afreksíþróttasviði, 15 af opinni stúdentsprófsbraut og einn af opinni stúdentsprófsbraut – afreksíþróttasviði, einn nemandi útskrifast með stúdentspróf af starfsbraut og sjö með stúdentspróf af fagbraut. 

Fjölmörg verðlaun voru afhent fyrir góðan námsárangur og að vanda setti tónlist flutt af útskriftarnemum stóran svip á athöfnina. Dux scholae 2022 er Oliver Rähni stúdent af opinni stúdentsprófsbraut með meðaleinkunnina 9,11. Semidux er Jelena Rós Valsdóttir stúdent af félagsvísindabraut með meðaleinkunnina 8,99. 

DEILA