Fyrsta skóflustungan að Nemendagörðum Lýðskólans á Flateyri

Íbúar á Flateyri og nemendur Lýðskólans á Flateyri tóku í dagsameiginlega fyrstu skóflustunguna að nýbyggingu Nemendagarða Lýðskólans. Húsið verður tekið í notkun um næstu áramót. Skólinn útskriaði í dag jafnframt fjórða árgang skólans í Samkomuhúsinu á Flateyri og að athöfn lokinni gengu starfsfólk, nemendur og gestir út að Hafnarstræti 29 og tóku sameiginlega fyrstu skóflustunguna húsinu.

Þetta er fyrsta íbúðarhúsið sem byggt er í þorpinu í 25 ár. Um er að ræða fjórtán stúdíóíbúðir fyrir nemendur skólans. Yrki artiktektar hönnuðu húsið með það að markmiði að nýbyggingin félli vel að núverandi götumynd Hafnarstrætis og yrði hluti af ásýnd þorpsins. Húsið er reist úr steyptum einingum frá Steypustöðinni og einangrað og klætt að utan með koparlitaðri álbáru.

Þrefalt fleiri hafa að jafnaði sótt um skólavist við Lýðskólann en hægt hefur verið að taka á móti og hefur skortur á húsnæði staðið í vegi fyrir fjölgun nemenda. Markmiðið er að 40 nemendur geti stundað nám við skólann en núverandi nemendafjöldi er um 30.

Mynd af væntanlegum nemendagörðum.

DEILA