Enn fækkar bensín- og dísilbílum

Bílasala fyrstu fjóra mánuði ársins er mun meiri en á sama tíma í fyrra og nýskráningar á fólksbílum um 60 % meiri.

Flestar voru nýskráningar í mars 1.451, en í apríl voru þær 1.403. Þetta kemur fram í tölum frá Bílagreinasambandinu.

Langflestar nýskráningar eru í nýorkubílum en fyrstu fjóra mánuði ársins námu þær alls 79,5%. Hreinir rafbílar tróna í efsta sætinu með alls 34.9% hlutdeild. Tengiltvinnbílar eru með 27,2% hlutdeild og hybridbílar 17,4%. Bensínbílar voru 10,4% og dísilbílar 10,1%.

Af einstökum bílategundum er Toyota í efsta sætinu með 17% hlutdeild fyrstu fjóra mánuði ársins. Hyundai er í öðru sæti með 10,3% hlutdeild og Kia í þriðja sætinu með 10,1%. Í næstu sætum koma Mitsubishi með 8,4%, Tesla með 7,3% og Volvo með 4,7%.

Fyrstu fjóra mániðu ársins voru nýskráningar til almennra notkunar alls 59,2% og til bílaleiga 39,9%.

DEILA