Bolungavík: K listinn vann meirihluta

Bolungavík.

K listinn bar sigur úr býtum í kosningunum í gær og fékk 251 atkvæði en D listi sjálfstæðisflokks og óháðra fékk 218 atkvæði. K listinn fékk því fjóra bæjarfulltrúa kjörna en D listinn 3 bæjarfulltrúa.

Í síðustu kosningum var þessu öfugt farið og því féll meirihlutinn.

Kjósendur á kjörskrá fyrir Bolungarvík í sveitarstjórnarkosningum 2022 voru 697 og alls kusu 484 sem er 69,4% kjörsókn.

Samkvæmt þessum úrslitum verður bæjarstjórn Bolungarvíkur skipuð á eftirfarandi hátt:

1. sæti K-listi Sigríður Hulda Guðbjörnsdóttir
2. sæti D-listi Baldur Smári Einarsson
3. sæti K-listi Magnús Ingi Jónsson
4. sæti D-listi Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir
5. sæti K-listi Ástrós Þóra Valsdóttir
6. sæti D-listi Kristján Jón Guðmundsson
7. sæti K-listi Olga Agata Tabaka

DEILA