Uppskrift vikunnar – kjúklingur með nóg af osti

Þessi kjúklingur er afskaplega góður og líka góður daginn eftir. Mjög gott að elda á laugardegi og eiga svo letidag á sunnudegi.

Fyrir 4

1 laukur
5 hvítlauksrif
Olía
4 kjúklingabringur (ef stórar þá taka í tvennt)
salt
pipar
1 tsk cajun bbq krydd eða kjúklingakrydd
2 dósir hakkaðir tómatar
4 msk tómatpúrra
2 msk ítalskt krydd
1 msk basil (eða 1 dl fersk söxuð)
1 pakki/dolla ferskir smátómatar
2 msk furuhnetur
1 poki rifinn mozarella

Meðlæti:


Klettasalat
Parmesan
Heilhveiti spaghetti
Sítrónu olía

Aðferð

Saxið laukinn og mýkið (steikið) í steypujárnspotti upp úr olíu. Þegar laukurinn er farin að verða glær er hvítlauk bætt við. setjið kjúklinginn í poka með 1 msk af olíu, bbq cajun kryddi, salt og pipar og blandið vel. Setjið hann svo í pottinn og er hann brúnaður við nokkuð háan hita á hvorri hlið.

Hellið tómötunum, púrrunni og kryddunum saman við og látið malla í 10 mínútur. Hér má vel bæta við meira salti og pipar. Sirka 1/2 tsk af salti og 1/4 tsk af pipar. Ath ekki smakka til því kjúklingurinn er ekki fulleldaður. Bætið þá helmingnum af smátómötunum saman við og hellið osti yfir. Hellið furuhnetunum yfir og smellið inn í ofn á 180 gráður í 25-30 mínútur eftir þykkt kjúklingsins.

Berið fram með klettasalati með sítrónuolíu og afgangnum af tómötunum og soðnu spaghetti – og auðvitað meiri osti! Rifinn parmesan ostur toppar lífið!

Verði ykkur að góðu!

Halla Lúthersdóttir.

DEILA