Ögmundur Jónasson: Rauði þráðurinn

Út er komin hjá Bókaútgáfunni Sæmundi bókin Rauði þráðurinn eftir Ögmund Jónasson.

Ögmundur Jónasson hefur í áratugi haft puttann á þjóðarpúlsinum, sjálfur alltaf í hringiðunni miðri sem fréttamaður, baráttumaður í grasrótinni, verkalýðsforingi, alþingismaður og ráðherra.

Í bókinni segir frá kynnum af samstarfsfólki í útvarpi og sjónvarpi, þingmönnum, samherjum og mótherjum og stofnun Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs.

Varpað er nýju ljósi á verkalýðsbaráttu og pólitík og sagt frá atburðum sem legið hafa í þagnargildi. Ögmundur talar opinskátt um samskiptin í ríkisstjórn Samfylkingar og VG á árunum 2009 til 2013 og beinir kastljósi einnig að atburðarásinni í kjölfarið.

Rauði þráðurinn fléttar saman gamalt og nýtt auk þess sem horft er til framtíðar.

Hún er skrifuð af þekkingu á þróun alþjóðamála síðustu áratugi og talar höfundur þar beint af baráttuvettvangi stjórnmála og alþjóðlegrar verkalýðshreyfingar.

DEILA