Konur hvattar til nýsköpunar

Á myndinni er • Hólmfríður Sveinsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Mergs Ráðgjafar.

Háskóli Íslands og Bandaríska sendiráðið á Íslandi leita nú að þátttakendum fyrir nýsköpunarhraðalinn Academy for Women Entrepreneurs (AWE) sem er sérstaklega ætlaður konum og hefst nú 3. febrúar og lýkur með útskrift þann 6. maí.  Bæði einstaklingar og lið geta tekið þátt í hraðlinum og frestur til að skila inn umsókn um þátttöku rennur út 17. janúar. Nýsköpunarhraðallinn er þátttakendum að kostnaðarlausu og eru verðlaun veitt í lok hraðalsins.

Þetta er í annað sinn sem hraðalinn er haldinn en markmið hans er að styðja konur í að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar og fyrirtæki og auka hlut þeirra innan frumkvöðla- og nýsköpunargeirans. Jafnframt er tilgangur hraðalsins að bjóða upp á fræðslu og efla tengslanet kvenna.

Netnámskeið og vinnulotur

Nýsköpunarhraðallinn samanstendur af netnámskeiðinu Dreambuilder á vegum Thunderbird School of Management við Ríkisháskólann í Arizona og þrettán vinnulotum sem Háskóli Íslands heldur utan um. Þar njóta þátttakendur m.a. leiðsagnar reyndra kvenna í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi við uppbyggingu fyrirtækja, mynda ný tengsl og efla starfsþróun og starfshæfni. Lögð er rík áhersla á að konur alls staðar af landinu og með fjölbreyttan bakgrunn og uppruna taki þátt. Fyrirkomulag hraðalsins er því með þeim hætti að flestar vinnulotur eru í streymi.

Verðlaun eru veitt fyrir bestu viðskiptahugmyndina bæði í einstaklings- og teymisflokki:

1. sæti – 500.000 kr. 

2. sæti – 300.000 kr.  

3. sæti – 200.000 kr. 

Einnig eru veitt verðlaun fyrir “pitch” keppni að upphæð 200.000 kr.

Í fyrra komust færri konur að en vildu og því hefur verið ákveðið að fjölga þátttakendum þannig að fulltrúar allt að 50 viðskiptahugmynda verða teknir inn að þessu sinni.

Hægt er að skrá sig til þátttöku í hraðlinum á vef AWE. Þar eru einnig frekari upplýsingar um fyrirkomulag hraðalsins og upptaka af kynningarfundi sem fram fór í lok síðasta árs.

Nánar um AWE-hraðalinn

Háskóli Íslands stendur fyrir AWE-hraðalinum í samvinnu við Bandaríska sendiráðið en AWE-verkefnið er í boði í yfir 50 löndum víða um heim á vegum bandarískra stjórnvalda. Ísland er fyrst norrænu ríkjanna til að taka þátt í verkefninu. Að skipulagningu hraðalsins koma einnig Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) og Samtök kvenna af erlendum uppruna (W.O.M.E.N). 

Tuttugu og fimm konur voru í hópi fyrstu þátttakenda í hraðlinum í fyrra og hafa í framhaldinu haslað sér völl bæði hér heima og erlendis með frekari þróun og fjármögnun viðskiptahugmynda sinna. 

DEILA