Farðu varlega, það gæti komið snjóflóð

Halla Signý Kristjánsdóttir

Þorrinn er á næsta leiti með öllum sínum tilbrigðum í veðri sem okkur býðst á þessu landi. En það þarf ekki þorrann til að vá liggi yfir á vegum landsins. Í þessari viku urðu öfgar í veðrabrigðum þess valdandi að vegir um Súðavíkur- og Eyrarhlíð lokuðust vegna snjóflóða. Lokunin um Súðarvíkurhlíð stóð yfir í 14 klukkustundir. Þar á undan hafði verið viðvörun vegna snjóflóðahættu í tvo sólarhringa. Þegar veginum var lokað síðastliðið sunnudagskvöld urðu 25 manns veðurtepptir í Súðavík. Súðvíkingar eru þekktir fyrir taka vel á móti fólki í þessum aðstæðum en það er þó ekki auðvelt sérstaklega á tímum samkomutakmarkanna.

Það má segja að Vestfirðingar séu orðnir vanir öðru eins í gegnum árin en þrátt fyrir það er grundvallarþörf þess samfélags sem við erum búin að hanna greiðar samgöngur. Kröfur um enn meiri samvinnu í samfélögum krefjast betri og öruggari samgangna. Gríðarlegar samgöngubætur hafa orðið á Vestfjörðum, þá sérstaklega á norðanverðu svæðinu. Mikil aukning hefur orðið á vetrarþjónustu sl. áratugi en úrbóta er enn þörf. Sér í lagi þegar frekari uppbygging atvinnulífs við Djúp eru fyrirhugaðar, bæði í laxeldinu og á vinnslu kalkþörunga í Súðavík.

Jarðgöng er lausnin

Það er ljóst að það þarf að ráðast í jarðgangnaframkvæmdir milli Súðavíkur og Ísafjarðar, aðeins þannig er hægt að tryggja öryggi vegfarenda. Það er ekki bara lokun vegarins sem skapar vanda heldur eru oft í gildi óvissustig, þá falla snjóflóð utan lokana sem og grjóthrun. Það ber þó að taka fram að vöktun á hættunni hefur aukist og orðið betri. Þrátt fyrir að vegfarendur pirri sig á lokunum, þá er gott að vita af því að fylgst er vel með þegar hættuástand skapast og brugðist við því. Það vill enginn að slys verði að veginum.

Uppbygging samfélaga

Samgöngubætur og greiðar samgöngur er grunnur fyrir uppbyggingu og þéttingu samfélaga. Það er gríðarlega mikilvægt að skoða hugmyndir um jarðgöng milli byggðakjarna á Vestfjörðum af fullri alvöru. Á Vestfjörðum býr fólk sem sækir vinnu daglega milli svæða, fólk sem vinnur m.a. við fiskeldi en það skilar þjóðarbúinu milljarða í útflutningstekjur. Svo að þessi atvinnugrein sem og aðrar á svæðinu haldi áfram að skila tekjum til þjóðarinnar þá þurfa að vera til staðar skilvirkar, öruggar, heilsárs samgöngur. Í þessu samhengi er einnig mikilvægt að huga að jarðgöngum frá Patreksfirði yfir í Tálknafjörð og undir Hálfdán.

Við þurfum að horfa til framtíðar, fleiri jarðgöng eru og eiga að vera möguleg. Mikilvægt er að um þau sé kveðið í samgönguáætlunum næstu ára. Ég get lofað ykkur því að jarðgöng koma til með að borga sig á margan hátt.

Halla Signý Kristjánsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins í NV kjördæmi

DEILA