Auglýst er eftir bátum í netarall

Ljósm. Valur Bogason

Haf­rann­sókna­stofn­un leit­ar nú að neta­bát­um fyr­ir stofn­mæl­ing­ar á hrygn­ing­arþorski eða svo­kallað net­arall og hef­ur Rík­is­kaup fyr­ir hönd stofn­un­ar­inn­ar óskað eft­ir tilboðum í það verk

Verkefnið hefur farið fram ár hvert frá 1996 og eru lögð net á um 300 stöðvum og fara leiðangrar yfirleitt fram í apríl og reynt er að miða upphaf leiðangra við dagsetningu sem næst 1. apríl.

Markmið rannsóknanna er að safna upplýsingum um kynþroska, aldur, lengd og þyngd þorsks á helstu hrygningarsvæðum. Einnig að meta árlega magn kynþroska þorsks sem fæst í þorskanet á hrygningarstöðvum og breytingar í gengd hrygningarþorsks á mismunandi svæðum.

DEILA