Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Þróunarverkefnasjóði Flateyrar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Þróunarverkefnasjóði Flateyrar.

Þróunarsjóður Flateyrar úthlutar nú í þriðja skipti fyrir árið 2022. Sjóðurinn styrkir nýsköpunar- og samfélagsverkefni sem efla atvinnu- og mannlíf á Flateyri og Önundarfirði og verða nú allt að 20 miljónir til úthlutunar.

Mat verkefna tekur mið af niðurstöðum íbúaþings á Flateyri og markmiðum Sóknaráætlunar Vestfjarða. Þær umsóknir sem berast í sjóðinn verða metnar af verkefnisstjórn byggðarlagsins sem skipuð er fulltrúum frá Ísafjarðarbæ, Vestfjarðastofu og Hverfisráði Önundarfjarðar.

Auglýst er eftir umsóknum í Þróunarsjóðinn fyrir styrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Flateyri og Önundarfirði, sem verkefnisstjórn úthlutar. Umsóknarfrestur er til og með 7.febrúar 2022 kl. 16.00.

Allir sem búa yfir hugmyndum að frumkvæðis- og/eða samfélagverkefnum í samfélaginu á Flateyri og Önundarfirði eru hvattir til að sækja um.

Frekari upplýsingar og tengil á umsóknareyðublað er að finna á uppýsingasíðu Vestfjarðastofu Þróunarsjóður Flateyrar | Vestfjarðastofa (vestfirdir.is) eða hjá verkefnastjóra á Flateyri í síma 8329191.

DEILA