Tálknafjörður: áhyggjur af sláturskipum í laxeldi

Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps tók sérstaklega til umræðu á síðasta fundi sínum áhrif af sláturskipum í fiskeldi og áhrifum þeirra á rekstrartekjur hafna. Lýsti sveitarstjórnin yfir áhyggjum af þessu máli og vill setja í lög ákvæði um starfsemi og notkun sláturskipa hér við land.

Bókun sveitarstjórnar í heild:

Sveitarstjórn Tálknafjarðahrepps tekur undir með stjórn Hafnasambands Íslands þar sem hún lýsir yfir áhyggjum af notkun og starfsemi sláturskipa í fiskeldi og þeirra neikvæðu áhrifa sem þau hafa á rekstrarumhverfi hafna. Þá er tekið undir hvatningu stjórnar hafnasambandsins til þess að starfsemi og notkun sláturskipa í fiskeldi verði sérstaklega
tekin til skoðunar og sett verði skýr ákvæði í lög og reglugerðir um starfsemi og notkun sláturskipa hér við land. Samhliða þeirri vinnu verði horft til endurskoðunar á ákvæðum hafnalaga nr. 61/2003 vegna fiskeldis, sem hafnasambandið hefur hvatt til að verði endurskoðuð.“

Tilefnið er að tvívegis hefur komið hingað til lands norskt sláturskip til þess að aðstoða við slátrun lax úr kvíum þegar aðstæður kölluðu á slátrun fisksins og ljóst að sláturhúsið á Bíldudal gat ekki annað þörfinni. Skipið slátrar út við kvíarnar og þaf ekki landa fiskinum í innlendri höfn og þá verða hafnirnar af aflagjaldi. hefur m.a. Vesturbyggð kallað eftir lagabreytingum til þess að bregðast við líkum aðstæðum.

Á málinu er tæpt i stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar, en þar stendur að mótuð verði heildstæð stefna um uppbyggingu, umgjörð og gjaldtöku af fiskeldi.

DEILA