Piparkökuís

Átt þú eftir að gera jólaísinn? Ekki örvænta, við höfum hér einfalda uppskrift af æðislegum jólaís sem bragðast eins og piparkaka! Þú þarft ekki að eiga ísvél og það eru engar ísnálar sem myndast í þessum ís. Eins og Linda orðar það, afskaplega einfalt allt saman.

Hráefni:

500 ml rjómi

6 eggjarauður

2 dl púðursykur

1 tsk kanill

1 tsk engiferkrydd

¼ tsk negulkrydd

Nokkrar piparkökur

Aðferð:

  1. Þeytið rjómann vel.
  2. Þeytið eggjarauðurnar og púðursykurinn mjög vel saman í annari skál þar til blandan myndar borða (sjá myndband á Instagram), setjið svo kanil, engifer og negul út í og blandið saman.
  3. Blandið rjómanum varlega saman við eggjablönduna með sleikju.
  4. Hellið ísnum í hringlaga kökuform og lokið forminu vel með plastfilmu. Frystið yfir nótt eða lengur.
  5. Útbúið kúlur úr frosnum ísnum og brjótið nokkrar piparkökur yfir.

Uppskrift og myndir: Linda Ben

Af vefsíðu Mjólkurvinnslunnar Örnu í Bolungarvík

DEILA