Nýr verkefnastjóri hjá Háskólasetrinu

Sigþrúður Margrét Gunnsteinsdóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra við Háskólasetur Vestfjarða.

Sigþrúður hefur starfað síðustu ár á öllum stigum grunnskólans. Hún hefur tekið þátt í innra starfi skólans í gæða- og innramatsteymi og hefur tekið þátt í þróun nýrra kennsluhátta. 

Sigþrúður, eða Sissú, eins og hún er jafnan kölluð, hefur lokið MT-gráðu, meistaragráðu í faggreinakennslu frá Háskóla Íslands og er innrituð í meistaranám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst. Þar á undan hefur hún lokið B.ed gráðu í grunnskólakennarafræði ásamt ýmsum fagtengdum endurmenntunarnámskeiðum.

Sigþrúður er vel tengd í samfélaginu á norðanverðum Vestfjörðum, hefur kennt bæði á Ísafirði og í Bolungarvík og er í stjórn Kvenfélagsins Hvatar og Þjóðbúningafélagi Vestfjarða.

Verkefnastjóri sinnir ýmsum verkefnum fyrir Háskólasetrið og mun til dæmis á komandi vori halda utan um ráðstefnu sem áætluð er. Einnig skipuleggur verkefnastjórinn vettvangsferðir og fyrirtækjaheimsóknir nemenda auk þess að halda utan um Vísindaport og geta allir sem áhuga hafa á að koma með erindi í Vísindaport gefið sig fram við nýjan verkefnastjóra á komandi ári.

DEILA