MERKIR ÍSLENDINGAR – EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON

MERKIR ÍSLENDINGAR – EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON

Ein­ar Odd­ur Kristjáns­son fædd­ist á Flat­eyri þann 26. des­em­ber 1942. 

For­eldr­ar hans voru hjón­in Kristján Ebenezers­son skip­stjóri, f. 1897, d. 1947, og María Jó­hanns­dótt­ir, stöðvar­stjóri Pósts og síma á Flat­eyri, f. 1907, d. 2003.

Ein­ar Odd­ur stundaði nám í Héraðsskól­an­um á Núpi í Dýraf­irði og í Mennta­skól­an­um á Ak­ur­eyri. Á skólaárunum var Einar Oddur til sjós á togaranum Guðmundi Júní en vann einnig við fiskvinnslu í landi. Einar Oddur var skrifstofumaður á Flateyri á árunum 1961-1965 og póstafgreiðslumaður þar á árunum 1965-1968.

Frá ár­inu 1968 starfaði Ein­ar Odd­ur við sjáv­ar­út­veg, fyrst sem einn af stofn­end­um og fram­kvæmda­stjóri hluta­fé­lags­ins Fiskiðjunn­ar Hjálms. Hann var síðar stjórn­ar­formaður hluta­fé­lag­anna Hjálms, Vest­firsks skel­fisks og Kambs.

Ein­ar Odd­ur sat í hrepps­nefnd Flat­eyr­ar­hrepps 1970-1982, var formaður Sjálf­stæðis­fé­lags Önund­ar­fjarðar 1968-1979, formaður full­trúaráðs Sjálf­stæðis­flokks­ins í Vest­ur-Ísa­fjarðar­sýslu 1979-1990 og formaður kjör­dæm­is­ráðs Sjálf­stæðis­flokks­ins á Vest­fjörðum 1990-1992.

Ein­ar Odd­ur sat í stjórn Vinnu­veit­enda­fé­lags Vest­fjarða frá ár­inu 1974. Hann var í aðal­stjórn Sölu­miðstöðvar hraðfrysti­hús­anna 1989-1994, stjórn­ar­formaður Vél­báta­út­gerðarfé­lags Ísfirðinga frá ár­inu 1984 og sat í stjórn Sam­taka fisk­vinnslu­stöðva 1981-1996. Hann var formaður efna­hags­nefnd­ar rík­is­stjórn­ar­inn­ar 1988. Formaður Vinnu­veit­enda­sam­bands Íslands var hann 1989-1992 og sat í stjórn at­vinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs 1995.

Ein­ar Odd­ur var alþing­ismaður fyr­ir Sjálf­stæðis­flokk­inn frá 1995 til dán­ar­dags. Á Alþingi átti hann sæti í mörg­um nefnd­um en lengst og mest starfaði hann í fjár­laga­nefnd, var vara­formaður henn­ar 1999-2007 og jafn­framt aðaltalsmaður síns flokks í rík­is­fjár­mál­um.

Þann 7. október 1971 kvænt­ist Ein­ar Odd­ur Sigrúnu Gerðu Gísla­dótt­ur hjúkr­un­ar­fræðingi, f. 20. nóvember 1943 – d. 22. maí 2018.

Börn Ein­ars Odds og Sigrún­ar Gerðu eru:

Bryn­hild­ur, Kristján Torfi og Teit­ur Björn.

Einar Oddur Kristjánsson lést þann 14. júlí 2007


F.v.: Einar Oddur, Brynhildur, Teitur Björn, Sigrún Gerða og Kristján Torfi.
.
. Orlofssamningarnir gerðir á Flateyri vorið 1981.F.v.: Björn Ingi Bjarnason, formaður Verkalýðsfélagsins Skjaldar,Ægir E. Hafberg, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Önundarfjarðarog Einar Oddur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hjálms h.f.Þessir samningar urðu fyrirmynd orlofssamninga um land allt og eru í farsælli framkvæmd enn í dag.
.
.
Þjóðarsáttarsamningarnir 1990. 
F.v.: Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambnds Íslands,
Haukur Halldórsson, formaður Bændasamtaka Íslandsog Einar Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveitendasambands Íslands.
.
.

  Skógræktarfrömuðir á Vestfjörðum.
F.v.: Sæmundur Þorvaldsson og Einar Oddur Kristjánsson.
.
Kvöldsólarstund að Sólbakka við Önundarfjörð.
F.v.:
Sturla Böðvarsson, Gróa Guðmunda Haraldsdóttir og Einar Oddur Kristjánsson.
 

Skráð af Menningar-Bakki.
DEILA