Iða Marsibil til liðs við Lax-Inn fræðslumiðstöð

Lax-Inn fræðslumiðstöð fiskeldis á Grandagarði í Reykjavík hefur fengið liðsauka, Iðu Marsibil Jónsdóttur, sem taka mun við sem framkvæmdastjóri félagsins. Iða er viðskiptafræðingur og stundar MBA nám við Háskólann í Reykjavík. Iða er Bílddælingur og fædd og uppalin fyrir vestan, hún er þriggja barna móðir og hefur brennandi áhuga og reynslu í fiskeldi.

Gefa almenningi innsýn í starfsemi fiskeldis á landsbyggðinni

Fræðslumiðstöðin var opnuð í byrjun september og hefur verið afar vel tekið þar sem fram fer kynning og bein útsending frá fiskeldinu, tengdri tækni, framleiðslu, markaðsetningu og dreifingu afurða en mest af starfseminni fer fram á landsbyggðinni sem Iða þekkir vel. Mikill uppbygging hefur verið á hennar æskuslóðum á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún tók þátt í uppbyggingu Arnarlax og hefur um árabil verið ein af lykilstarfsmönnum félagsins starfað þar við mannauðsmál, fjármál og skrifstofustjóri félagsins.

Fræðslumiðstöð fiskeldis farið vel af stað

„Við erum heppin að fá Iðu til liðs við okkur og erum þakklát fyrir viðtökur bæði almennings sem og samstarfsaðila Lax-Inn sem gefur okkur tækifæri til frekari vaxtar. Iða hefur mikla reynslu af fiskeldi og stýringu rekstrar þar sem kraftar hennar munu nýtast vel til frekari uppbyggingar fræðslumiðstöðvarinnar.“ segir Sigurður Pétursson stofnandi Lax-Inn. 

Lýsing og beinar útsendingar frá heildarferli framleiðslunnar, frá hrogni til fisks á disk
Fræðslan miðar að því að kynna heildarferli framleiðslunnar hvernig jarðvarmi og græn raforka eru nýttar og hagstæðar umhverfisaðstæður í landeldi einnig með gegnumstreymi og hringrásarkerfi. Frætt er um áframeldi í sjó, en það er gert við köldustu aðstæður sem þekkjast í laxfiskaeldi í heiminum. Öllu framleiðsluferlinu eru gerð ítarleg skil, hvað einkennir gæði afurða og umhverfisáhrif framleiðslunnar rakin. Áhersla er lögð á kynningu á eldistækni íslenskra fyrirtækja sem eru mjög framarlega á heimsvísu í tæknilausnum bæði í eldi og framleiðslu. Einnig kynning á dreifileiðum, markaðsetningu og hagrænum þáttum lagareldis.

Leiða áframahaldandi uppbyggingu fræðslumiðstöðvarinnar

Starfsemi Lax-Inn fræðslumiðstöðvar byggir á því að á því að fyrirtæki og stofnanir sem tengjast lagareldi kynni starfsemi sína sem er um leið fræðsla á heildarferli eldis. Frá stofnun hefur bæst í hóp samstarfsaðila sem bætir jafnframt kynningu eldisins frá klaki til endanlegrar umhverfisvænnar sjálfbærar matvælaframleiðslu. Iða mun leiða áframhaldandi uppbyggingu fræðslu um þessa mest vaxandi atvinnugrein okkar Íslendinga sem þegar stendur undir rúmlega 5% af heildar útflutningstekjum þjóðarinnar.

DEILA