Einfaldur kjúklingaréttur

Svona þegar nálgast jólin og mikill tími hjá mörgum fara í bakstur og matargerð fannst mér alveg upplagt að skella inn einni afskaplega einfaldri og fljótlegri uppskrift.

4 kjúklingabringur

Innihald

2 msk ólífuolía 
250 ml rjómi 
1/2 dl Hot chilí sauce frá Heinz (eða Heinz chilí sauce fyrir mildari rétt) 
1 msk oregano 
1 tsk kjúklingakraftur frá Oscars 
1 dl rifinn ostur 
salt og pipar   Leiðbeiningar   1.Hitið olíu á pönnu. Skerið kjúklinginn í bita, saltið og piprið og steikið á pönnu. Takið af pönnu og látið í ofnfast mót 2.Setjið rjóma, chilísósu og oregano í pott og hitið. Saltið og piprið að eigin smekk. 3.Hellið sósunni yfir kjúklinginn og stráið rifnum osti yfir allt. 4.Hitið í 210°c heitum ofni í 15 mínútur. 5.Berið fram með hrísgrjónum/tagliatelle og salati.  

Verði ykkur að góðu.

 
Halla Lúthersdóttir

DEILA