Austfirðir: laxeldisfyrirtæki sameinast

Frá laxeldi í Reyðarfirði.

Eftir lokun markaða í dag, 13. desember, skrifuðu meirihlutaeigendur ICE Fish Farm og Laxa undir samkomulag um mögulega sameiningu félaganna.  ICE Fish Farm mun kaupa öll hlutabréf í Löxum og borga fyrir með hlutabréfum í ICE Fish Farm í kjölfar samþykkis aðalfunda félaganna.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem var að berast.

Sameinað félag verður eitt öflugasta fiskeldisfyrirtæki landsins, með starfsemi í fjórum sveitarfélögum.  Seiðaframleiðsla nýs félags mun samanstanda af þremur seiðaeldisstöðvum í Ölfusi ásamt 50% eignarhlut í seiðastöðinni Ísþór og tveimur seiðaeldisstöðvum í Norðurþingi, á Rifósi og Kópaskeri. 

Sjóeldi félagsins verður í þremur fjörðum; Berufirði, Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði en í ferli eru umsóknir um leyfi í Stöðvarfirði og Seyðisfirði.  Sameinað félag á 67% hlutafjár í Búlandstindi ehf og sameiginlegur fjöldi starfsmanna er um 200.  Sameinað félag er með 36.800 tonn í samanlögðum leyfum og þar af eru 2.300 tonn fyrir ófrjóan fisk.  Í umsókn eru leyfi uppá viðbótar 17.000 tonn.

Fyrirtækin verða um sinn rekin hvort í sínu lagi en stjórnendateymi félaganna munu strax fara í að vinna að sameiginlegri uppbygginu og framtíðarsýn.

DEILA