Vinnuvélar í umferð eru skráningarskyldar

Eigendur vinnuvéla sem ætlaðar eru til aksturs í umferð, það er að segja á opinberum vegum, þurfa nú að skrá þær í ökutækjaskrá og setja á þær skráningarmerki til auðkenningar.

Skráning þessara vinnuvéla hófst 1. nóvember, og þarf að hafa farið fram fyrir 31. desember næstkomandi. Eftir þann tíma má eiga von á sektum.

Ökutækjaskrá er í umsjón Samgöngustofu en til hagræðingar fyrir eigendur vinnuvéla mun Vinnueftirlitið annast allar skráningar og eigendaskipti á þeim. Sótt er um skráningu vinnuvéla til aksturs í umferð á vef Vinnueftirlitsins.

DEILA