Útkall í auga fellibylsins

Útkall í auga fellibylsins er ný bók eftir Óttar Sveinsson

Þrír menn eru á leið frá Kanada til Íslands á lítilli skútu, á einu hættulegasta hafsvæði veraldar, þegar brestur á fárviðri.

Tveir Íslendingar sem aldrei hafa kynnst siglingum áður, verða að liggja á gólfi káetunnar í ofsanum í tugi klukkustunda.

Lífshættulegir brotsjóir dynja á skútunni og hún fer á hliðina og sjór flæðir inn. Þegar skútan réttir sig við og fer svo aftur á hliðina er ákveðið að senda út neyðarkall. En hvernig er björgun framkvæmanlega svona langt utan þryludrægis.

Hér lýsir áhöfn skútunnar og aðstandendur hennar á Íslandi í fyrsta skipti opinberlega örlagaríkum sólarhringum árið 2013 þar sem barist var upp á líf og dauð.

DEILA