Minningarrit um Jón Hallfreð Ingvarsson

Út er komin hjá Snjáfjallasetrinu bókin Minningarrit um Jón Hallfreð Ingvarsson. Bókin er 194 blaðsíður að stærð

Jón Hallfreð Ingvarsson fæddist á Snæfjallaströnd 1921 og lést þar 1945 úr Duchenne vöðvarýrnunarsjúkdómnum.

Í þessu riti eru ljóðmæli eftir Jón Hallfreð Engilbertsson til minningar um föðurbróður hans og nafna.

Einnig skrifa í ritið systkini Jóns Hallfreðs eldri. Engilbert S. Ingvarsson skrifar minningabrot um bróður sinn og Jóhanna S. Ingvarsdóttur skrifar minningabrot sem bera heitið Blóm í brotnum vegg.

DEILA