Kjölur : hvar er vinnutímastytting starfsmanna sveitarfélaga?

Frá fundi fulltrúaráðs Kjalar. Mynd: kjolur.is

Stéttarfélagið Kjölur, sem tekur hefur við hlutverki F.O.S.Vest , ályktaði í vikunni um styttingu vinnutímans sem samið var um í síðustu kjarasamningum og spyr hvar vinnutimastyttingin er. Vísað er til þess að bæði hjá ríkinu og Reykjavíkurborg hafi miðað vel með styttinguna og spjótunum beint að öðrum sveitarfélögum.

„Fulltrúarráð Kjalar stéttarfélags skorar á sveitarfélögin að tryggja starfsfólki sínu styttingu vinnuvikunnar eins og samið var um í kjarasamningum. Sveitarfélögin verða að beita sér fyrir því að fram fari umbótasamtöl á hverjum vinnustað þar sem starfsfólkið útfærir styttinguna og ákveður hversu mikil hún verður. Hjá ríkinu hafa átta af hverjum tíu vinnustöðum farið í 36 stunda vinnuviku og níu af tíu vinnustöðum hjá Reykjavíkurborg. Önnur sveitarfélög verða að fylgja því fordæmi og tryggja þar með aukin afköst, betri þjónustu og aukna starfsánægju.“

DEILA