Gunni Þórðar – Lífssaga

Lífshlaup Gunnars Þórðarsonar er í senn furðulegt og stórkostlegt og er sú saga rakin í nýrri bók en höfundur hennar er Ómar Valdmarsson

Fáir núlifandi íslenskir tónlistarmenn komast með tærnar þar sem hann hefur hælana.

Þetta er saga um strák, kominn af veðurbitnum bændum og sjómönnum norður á Ströndum, sem kemur suður og verður undrafljótt fremsti dægurtónlistarmaður landsins; ryður frá sér smellum og nýtur virðingar og elsku þjóðarinnar allrar.

Svo fær hann nóg af dægurtónlistinni og snýr sér að klassík og óperusmíð með sama árangri.
Allt þetta með sjálfsmenntun og á eigin forsendum knúinn áfram af botnlausum metnaði til að gera betur næst og svo enn betur.

DEILA