Dagur klósettsins er 19. nóvember

Rusl úr fráveitu á skólphreinsistöð

Á hverju ári má ætla að tæplega 200 tonn af ýmsumóæskilegumúrgangi komi í fráveitur um allt land. Það þýðir að um hálft kíló af rusli fer í klósettin eða niðurföll á hvern íbúa á landinu.

Úrgangur í fráveitu er landlægt vandamál. Auk þess að skaða umhverfið og þyngja rekstur fráveitukerfa, getur kostnaður sveitarfélaga vegna hreinsunar og förgunar rusls í fráveitum hlaupið á tugum milljóna króna á ári.

Stærsta vandamálið eru blautþurrkur og/eða sótthreinsiklútar, auk smokka, tannþráðar og eyrnapinna en mikilvægt er að fá fólk til að hugsa sig tvisvar um áður en það hendir rusli frá sér. 

Verkefnið hefur það markmið að draga úr rusli í fráveitu og draga um leið úr álagi á umhverfið okkar. Lag verkefnisins sló rækilega í gegn í fyrra. Það er vel við hæfi að dusta rykið af því og fagna alþjóðlegum degi klósettsinsþann 19. nóvember.

https://youtube.com/watch?v=fGrZwCcDz_w

 Átaksverkefnið er samvinnuverkefni Umhverfisstofnunar og Samorku í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og heilbrigðisnefnda á landinu.

DEILA