Aron og Freyja í stað Jóns og Gunnu

Þjóðskrá hefur tekið saman lista yfir algengustu nöfnin hér á landi miðað við 15. nóvember síðastliðinn hjá þeim sem búsettir eru hér á landi.

Aron var vinsælasta eiginnafn nýfæddra drengja á síðasta ári en þar á eftir koma Alexander og Emil.

Freyja og Andrea voru vinsælust eiginnöfn nýfæddra stúlkna, þá Emilía og Bríet.  

Jón er ennþá algengasta eiginnafnið hjá körlum, en næst koma eiginnöfnin Sigurður og svo Guðmundur.

Af kvenmannsnöfnum var Guðrún algengasta eiginnafnið, þá Anna og svo Kristín.

DEILA