Súðavíkurhlíð lokuð í sólarhring

Frá Súðavíkurhlíð eftir opnun. Mynd: Bragi Thoroddsen.

Súðavíkurhreppur vekur athygli á því Súðavíkurhlíðin var lokuð frá 11:30 þann 28.9. til kl. 9:00 daginn eftir 29.9.2021.

Bragi Þór Thorodden, sveitarstjóri vekur athygli á þessu í pistli á vefsíðu sveitarfélagsins og segir m.a.:

„Sá sem þetta ritar telur fulla þörf á því að hætta ekki að halda úti þeim áróðri og ákalli um úrbætur enda ljóst að við sitjum ekki við sama borð og aðrir nágrannar okkar á Vestfjörðum hvað varðar aðgengi að þjónustu og atvinnusókn á sameiginlegt atvinnusvæði. Þess utan hamlar þetta vexti sveitarfélagsins og viðgangi og veldur því með tíð og tíma að fólk gefst hreinlega upp á þeirri viðvarandi ógn sem steðjar að þegar ekið er um Súðavíkurhlíðina.“

Bragi segir að á vettvangi Fjórðungssambands Vestfirðinga og Vestfjarðastofu hefur verið skoðað undanfarin misseri að raða jarðgangakostum eftir mikilvægi þeirra fyrir Vestfirðina í heild. Er í gangi úttekt á vegum ráðgjafafyrirtækis – nú KPMG til þess að greina þessa þörf og nauðsyn og leggja væntanlega til forgangsröðun á þessum kostum.

„Göng milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar voru sem kostur á fyrri samgönguáætlun, en viku þegar ný samgönguáætlun var birt, enda virðist sem svo að áhugi hafi dvínað og sett í forgang að klára göngin undir Hrafnseyrarheiði – Dýrafjarðargöng. Þrátt fyrir að þar sé um að ræða mikla samgöngubót eru málefni sem varða öryggi og samgöngur fyrir Súðavík og þá sem fara suðurleiðina um Djúp óleyst hvað þetta varðar. Einhvern veginn hefur sú rödd dvínað og kannski ekki annars von þegar aðeins berst ákall um þetta frá Súðavíkurhreppi.“

DEILA