Nýr íslenskur kjölfestufjárfestir í fiskeldisfyrirtækinu Hábrún hf. í Ísafjarðardjúpi

Á myndinni má sjá fulltrúa seljenda og kaupanda ásamt ráðgjöfum sínum við undirritun kaupsamnings. Mynd: aðsend.

ÍV SIF Equity Farming ehf. er eignarhaldsfélag í eigu hóps íslenskra fjárfesta sem hefur að meginmarkmiði að byggja upp eignasafn í fiskeldi og tengdri starfsemi. Félagið hefur nú eignast meirihluta í fiskeldisfyrirtækinu Hábrún hf. sem starfrækir eldi í Ísafjarðardjúpi. Fyrr á þessu ári eignaðist félagið meirihluta í fiskeldisfyrirtækinu ÍS 47 ehf. sem starfrækir eldi í Önundarfirði. 

Hábrún hf. er frumkvöðull í fiskeldi í Ísafjarðardjúpi. Félagið og fyrirrennarar þess fengu fyrst leyfi til eldisstarfsemi árið 1996 og hefur starfsemin vaxið og þróast jafnt og þétt síðan þá. Félagið er í dag öflugt fiskeldisfyrirtæki sem hyggur á aukin umsvif.

Halldór Gunnlaugsson verður framkvæmdastjóri Hábrúnar hf. Hann er uppalinn Hólmvíkingur sem áður hefur starfað sem fjármálastjóri Arnarlax og starfar nú sem framkvæmdastjóri ÍS 47. Halldór mun áfram starfa sem framkvæmdastjóri ÍS 47. Halldór er löggiltur endurskoðandi og hefur starfað hjá KPMG og Grant Thornton með áherslu á sjávarútveg og fjármálafyrirtæki.

Starfsemi Hábrúnar hefur þróast undanfarin ár og kemur til með að þróast enn frekar næstu misseri. Við stefnum að því að efla fyrirtækið og starfsemi þess til muna og fögnum þeim áfanga sem náðist með aðkomu öflugs hóps íslenskra fjárfesta að félaginu. Það er lykilatriði í okkar áætlunum.“ Segir Halldór.

Ráðgjafar seljanda við voru Mar Advisors en fyrirtækjaráðgjöf Íslenskra verðbréfa var kaupanda til ráðgjafar við kaupin.

DEILA