Maturinn, jörðin og við

Félagið Auður norðursins í samstarfi við Byggðastofnun og fleiri aðila efna til ráðstefnu um matvælaframleiðslu í nútíð og framtíð. Ráðstefnan fer fram í Hofi á Akureyri og hefst um hádegi 10. nóv. og líkur seinni partinn daginn eftir. Nánari tímasetning og dagskrá verða birt um leið og þær liggja fyrir.

Á ráðstefnunni verður fjallað um innlenda matvælaframleiðslu útfrá mörgum hliðum, m.a. með hliðsjón af loftslagsmálum, heilsusjónarmiðum og fleiri áhrifaþáttum á neyslu og lífsstíl. Sjónum verður beint að áhrifum á samfélög, byggð og atvinnulíf í landinu og þeim tækifærum og ógnunum sem við stöndum frammi fyrir.

Efni ráðstefnunnar ætti að höfða bæði til þeirra sem fást við matvælaframleiðslu og móta stefnu á því sviði en einnig til þeirra sem horfa til almennrar samfélagsþróunar og byggða- og atvinnuþróunar um land allt. Það er því skynsamlegt taka þessa daga frá til að missa ekki af mikilvægum upplýsingum og umræðu um þetta mikilvæga samspil sem getur skipt sköpum til framtíðar. 

DEILA