Jól í skókassa

Ísafjarðarsókn tekur þátt í verkefninu "jól í skókassa" eins og fyrri ár. Skiladagur fyrir kassana er 4. nóvember.

„Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur Guðs í verki. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa.
Fyrir jólin 2004 ákvað hópur ungs fólks innan KFUM & KFUK að láta reyna á verkefnið hér á landi. Undirtektirnar voru frábærar og söfnuðust rúmlega 500 kassar það árið. Verkefnið hélt svo áfram að spyrjast út og árið 2005 urðu skókassarnir 2600. Sú tala hefur síðan tvöfaldast því undanfarin ár hafa borist í kringum 5000 gjafir.

Hvernig á að ganga frá skókassanum?

  1. Finnið tóman skókassa og pakkið honum inn í jólapappír. Athugið að pakka lokinu sérstaklega inn þannig að hægt sé að opna kassann. Hægt er að nálgast skókassa í skóbúðum og mælt er með að fólk tryggi sér kassa í tæka tíð.
  2. Ákveðið hvort gjöfin sé ætluð fyrir strák eða stelpu og fyrir hvaða aldur: (3-6), (7-10), (11-14) eða (15-18). Hér til hægri á síðunni (útprentanlegt efni) má finna tilbúinn merkimiða. Klippið miðann út, merkið við réttan aldursflokk og límið ofan á skókassann. Einnig er hægt að útbúa sína eigin merkimiða og merkja aldur og kyn á þá.
  3. Setjið 500-1.000 krónur  efst í kassann. Peningurinn er fyrir kostnaði sem fylgir verkefninu.
  4. Lokið kassanum með því að setja teygju utan um hann.

Gjafir í skókassana

Í kassann skal setja a.m.k. einn hlut úr hverjum eftirtalinna flokka:

  • Leikföng, t.d. litla bíla, bolta, dúkku, bangsa eða jó-jó. Athugið að láta auka rafhlöður fylgja rafknúnum leikföngum.
  • Skóladót, t.d. penna, blýanta, yddara, strokleður, skrifbækur, liti, litabækur eða vasareikni.
  • Hreinlætisvörur. Óskað er eftir því að allir láti tannbursta, tannkrem og sápustykki í kassann sinn. Einnig má setja greiðu, þvottapoka eða hárskraut.
  • Sælgæti, t.d. sleikjó, brjóstsykur, pez, tyggjó eða karamellur.
  • Föt, t.d. húfu, vettlinga, sokka, trefil, bol eða peysu.

Ísafjarðarsókn tekur þátt í verkefninu „jól í skókassa“ eins og fyrri ár. Skiladagur fyrir kassana er 4. nóvember.

Nánari upplýsingar eru á Jól í skókassa (kfum.is)

DEILA