Ísafjarðarbíó: heimildarmyndin hálfur álfur sýnd á morgun

Heimildamyndin Hálfur Álfur eftir Jón Bjarka Magnússon verður sýnd í Ísafjarðarbíói, á morgun, þriðjudaginn 26. október, klukkan 20:00. Myndin fjallar um vitavörðinn Trausta sem tengist sínum innri álfi á meðan hann undirbýr hundrað ára afmælið eða eigin jarðarför. Á sama tíma hörfar Hulda inn í heim horfinna ljóða með aðstoð stækkunarglersins síns. Þegar hann brestur í söng skipar hún honum að hætta þessum öskrum. Í Hálfum Álfi er lífinu fagnað, þrátt fyrir þann veruleika sem bíður okkar allra. Jón Bjarki fylgdi afa sínum og ömmu, þeim Trausta Breiðfjörð Magnússyni og Huldu Jónsdóttur, svo úr varð hans fyrsta heimildamynd í fullri lengd.

Jón Bjarki segir að það sé vel við hæfi að sýna myndina á Ísafirði, „bænum þar sem afi og amma kynntust. Þau voru bæði Strandamenn, afi ólst upp á Gjögri og amma á Seljanesi, en þau settust að á Djúpavík þar sem þau komu upp fjölskyldu á síldarárunum.“

Í fréttatilkynningu segir að Hálfur Álfur hafi fengið góðar viðtökur hér á landi sem og erlendis, en hún vann m.a. dómnefndarverðlaun Skjaldborgarhátíðarinnar 2020, var tilnefnd til Edduverðlauna sem besta heimildamyndin, auk þess sem hún hefur verið sýnd á ýmsum kvikmyndahátíðum í Evrópu þar sem hún hefur verið tilnefnd til ýmissa verðlauna. „Sterk og heilsteypt saga, einlæg og tilgerðarlaus frásögn. Mynd sem hrífur mann með sér frá fyrstu mínútu og fær mann til að hlæja og gráta á víxl,“ sagði m.a. í umsögn dómnefndar Skjaldborgar.

Þá fékk myndin fjórar stjörnur í Morgunblaðinu, en þar sagði gagnrýnandinn Gunnar Ragnarsson m.a. þetta um myndina: „Hálfur Álfur er skemmtileg og falleg mynd sem er merkilegur vitnisburður um fólk og kynslóðina sem það tilheyrir. Hún lýsir hversdagsleika þess en leyfir sér líka að vera ekki of jarðbundin. Gjörningur verksins er persónulegur, og sýnir fram á gildi þess að skapa list þvert á kynslóðir.

Myndin fékk einnig fjórar stjörnur frá Fréttablaðinu, þar sem gagnrýnandinn Þórarinn Þórarinsson sagði m.a.: „Óðurinn sem gömlu hjónin Trausti og Hulda syngja og kveða lífinu í Hálfur álfur er svo einstakur að hann kemur við innsta kjarna hins sammannlega. Vekur trega og gleði á víxl í einföldu en umleið margræðu listaverki sem er eitthvað annað og miklu meira en heimildarmynd í nokkrum hefðbundnum skilningi.“

Þá skrifaði Jón Viðar Jónsson gagnrýnandi dóm um myndina þar sem hann fer afar fögrum orðum um verkið og segir það m.a. einstaklega fallegt og beinlínis grípandi á köflum. „Einskonar meistaraverk… Afinn er sprúðlandi lífskraftur,“ skrifaði dsvo Eiríkur Guðmundsson, Víðsjá.

Hér er svo treiler myndarinnar: https://vimeo.com/373964241

DEILA