Gott útlit í loðnuveiðum

Í morg­un var til­kynnt að Haf­rann­sókn­ar­stofn­un ráðleggði allt að 904.200 tonna loðnu­veiði fyr­ir kom­andi vertíð. Það er þriðja stærsta ráðgjöf um loðnu­veiði í sög­unni og sú stærsta í tvo ára­tugi. 

Samkvæmt bergmálsmælingunni haustið 2021 er hrygningarstofn loðnu metinn 1 833000 tonn. Ráðgjöf um aflamark byggist á því að 95% líkur séu á að hrygningarstofninn í mars verði yfir 150000 tonnum. Samkvæmt framreikningum munu markmið aflareglu nást ef afli verður að hámarki 904 200 tonn á vertíðinni 2021/2022.
Vísitala ókynþroska loðnu (1 og 2 ára) er sú þriðja hæsta frá upphafi mælinga.

Hér er um að ræða haustráðgjöf sem er endurmetin ráðgjöf fyrir núverandi fiskveiðiár og kemur í stað upphafsráðgjafar.

DEILA