Að eiga öruggan samastað

Fyrr á árum vann ég hjá Kvennaathvarfinu og eftir þá reynslu er ég sannfærð um að ekkert er verra en að njóta ekki heimilisöryggis. Heimilið á að vera griðastaður og þarf að vera öruggt. Þetta grundvallarsjónarmið rifjaðist upp fyrir mér þegar ég heimsótti nýtt fjölbýlishús sem Samtök um kvennaathvarf hafa látið reisa til þess að auðvelda konum og börnum leiðina aftur út í lífið eftir dvöl í athvarfinu sjálfu. Bygging þessa húss er nauðsynleg, en líka afleiðing af grimmum húsnæðismarkaði þar sem tekjulítið fólk hefur fá tækifæri til að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Það er húsnæðismarkaður sem þjónar frekar spákaupmönnum en þeirri grundvallarþörf fólks að eiga sér heimili. Réttur fjármagnseigenda og verktaka að búa til peninga á þessum markaði er metinn framar rétti fólks til að lifa við öryggi. Samkvæmt öllum helstu spám má vænta töluverðra hækkana á þessum óhefta markaði, ef ekkert verður að gert.

Það er skýr krafa verkalýðshreyfingarinnar að stjórnvöld breyti viðhorfum sínum og húsnæðismálin verði eitt af stóru málunum við myndun nýrrar ríkisstjórnar. Rétturinn til öryggis verður að vera í forgrunni og stórfelld uppbygging húsnæðis án hagnaðarsjónarmiða verður að eiga sér stað. Það er nauðsynlegt að koma húsnæðiseigendum í skjól fyrir verðbólgu og vaxtabreytingum þannig að fólk hafi möguleika á að skipuleggja framtíðina. Réttindi leigjenda verður að tryggja með nýjum lögum og binda verður endi á búsetu í atvinnuhúsnæði. 

Í vikunni var kastljósinu einnig beint að ólöglegri uppsögn trúnaðarmanns hlaðmanna á Reykjavíkurflugvelli. Það mál verður rekið fyrir dómstólum enda lýtur það að kjarna verkalýðshreyfingarinnar; að fólk geti beitt sér í réttindabaráttu fyrir sig og félaga sína án þess að hefnast  fyrir það með atvinnumissi. Skömm yfirmanna hjá Icelandair er mikil að hafa ekki einungis rekið trúnaðarmann, heldur líka einu konuna sem vann þessi störf á flugvellinum. Þá stingur í augu að Samtök atvinnulífsins virðast leggja blessun sína yfir framferðið, þrátt fyrir skýra lagavernd trúnaðarmanna gagnvart órökstuddum uppsögnum. Svona grundvallarbrot einstakra atvinnurekenda gegn réttindum starfsfólks munu lita samskipti á vinnumarkaði og komandi kjaraviðræður.

Góða helgi,
Drífa Snædal

forseti ASÍ

DEILA