Vestri: vantar sárlega sjálfboðaliða

Heimavöllur Körfuknattleiksdeildar Vestra er á Torfnesi.

Sitjandi stjórn Körfuknattleiksdeildar Vestra hefur boðað til annars aukaaðalfundar laugardaginn 11. september kl. 16:00 í fundarsal Íþróttahússins á Torfnesi. Á dagskrá fundarins auk áður auglýstra liða bætist við undir önnur mál „Framtíð rekstrar meistaraflokka.“

Körfuknattleiksdeild Vestra hélt aukaaðalfund í síðustu viku. Á dagskrá fundarins var kosning stjórnar sem frestað var á aðalfundi deildarinnar sem haldinn var síðastliðið vor. Ekki tókst að fullmanna stjórnina á fundinum.

Kosningu var því frestað öðru sinni og boða til annars aukaaðalfundar.

Tímabilið hjá meistaraflokkunum í hættu

Í tilkynningu frá fráfarandi stjórn segir að framundan séu vandasöm verkefni sem ekki verða unnin án fólks sem er tilbúið til starfa. „Ljóst er að komandi tímabil hjá báðum meistaraflokkum félagsins er í hættu vegna þessarar óvissu. Starfið framundan er ómögulegt með fáa aðila sem geta sinnt stjórnarstörfum og daglegum verkefnum.“

Ennfremur segir:

„Það vilja allir eiga lið í efstu deildum. Það eru ekki öll félög sem tefla fram meistaraflokkum beggja kynja í Íslandsmóti. En þetta gerist ekki af sjálfu sér. Við hvetjum því alla sem telja sig geta lagt hönd á plóg að mæta til fundar og/eða gefa sig fram við stjórnarfólk og taka á þessu með okkur.“

Dagskrá aukaaðalfundarins er :

Fundarsetning

Kosning fundarstjóra og fundarritara

Kosningar:

Kosning formanns

Kosning tveggja aðalmanna til tveggja ára og þriggja til vara til eins árs, samtals fimm manna stjórn með þremur varamönnum

Önnur mál

Framtíð reksturs meistaraflokka

Fundargerð upplesin og fundarslit

DEILA