SKAGINN 3X styrkir íþróttastarf

Fyrir hönd starfsmanna sinna vill 3X Technology stuðla að bættum gæðum og faglegri vinnu við barna- og unglingastarf íþróttahreyfinga í heimabyggð.

Forsvarsmenn fyrirtækisins trúa á gildi íþróttaiðkunar til forvarna, 3x veitir styrk að upphæð kr. 1.500.000 fyrir árið 2021 og er styrkurinn hugsaður til eflingar íþróttaiðkunar.

Megin markmiðið með styrknum er að efla faglegt starf og gæði við þjálfun ungra iðkenda er stunda íþrótt sína hjá aðildarfélögum HSV. Horft er til allra aðildarfélaga HSV, bæði stúlkna og drengja. Stuðningurinn er einungis ætlaður sem viðbót við núverandi barna- og unglingastarf og ekki ætlaður til frekari fjárfestinga innan íþróttahreyfingarinnar né æfinga og keppnisferða.

Ekki er að þessu sinni stuðst við sérstakar úthlutunarreglur eða leiðbeiningar heldur geta forsvarsmenn aðildarfélaga sent inn beiðnir eða umsóknir er samræmast megin tilgangi verkefnisins.

Stjórn HSV mun fara yfir umsóknir ákveða úthlutun. Vonast stjórn HSV til að fá fram fjölbreyttar hugmyndir að eflingu starfs hjá aðildarfélögum sambandsins.

DEILA