Kvikmyndahátíð á Vestfjörðum í næsta mánuði

Í næsta mánuði, frá 14. – 17. október, verður kvikmyndahátíðin The Pigeon International Film Festival eða Piff í daglegu tali á norðanverðum Vestfjörðum. Sýndar verða 70 myndir á hátíðinni. Aðalsýningarstaður er Ísafjarðarbíó og verða sýnar myndir þar í 4 daga. Í Bolungarvík verða sýningar í 2 daga, og á Suðureyri verða 2 sýningar og líka í Súðavík.

Það verða sýndar 2 Íslenskar kvikmyndir, og 4 Íslenskar stuttmyndir á hátíðinni.

Það verður frítt í bíó í Bolungarvík, Súðavík og á Suðureyri. Hægt verður að kaupa passa á allar myndirnar á Ísafirði, eða kaupa staka miða á hverja sýningu fyrir sig.

Íslensku kvikmyndirnar eru Uglur Eftir Teit Magnússon og svo Free Man eftir Óskar Kristinn Vignisson. 3 af Íslensku stuttmyndunum hafa tengingu hér vestur, þar á meðal vinningsmyndin úr Kvikmyndaskólanum. 

Fjölnir Már Baldursson, forsvarsmaður hátíðarinnar segir að sýnd verði ítölsk kvikmynd sem hefur verið að gera það frábært á kvikmyndahátíðum um alla Evrópu og víða,r Það er Ítalska kvikmyndin EST.

„Þeir verða 2 frá þeirri kvikmynd sem munu koma á hátíðina, og líklega verða yfir 30 erlendir gestir á hátíðinni. það verður líka margir Íslenskir kvikmyndagerðamenn á hátíðinni og mikið verður um að vera í bænum þessa helgi.

Við erum með Pólland í sviðsljósinu og við munum sýna yfir 20 myndir þaðan og margar alveg frábærar. Fræðslumyndir, teiknimyndir, stuttmyndir og fleira.“

Sýnt verður beint frá verðlaunaafhendingunni í sammvinnu með Viðburðarstofu Vestfjarða. Margir styrkja hátíðina og má þar nefna Bolungarvíkurkaupstað, Ísafjarðarbæ; Snerpu, Húsið,Dokkuna, Hamraborg, Pennann og fleiri.

DEILA